Lárus Jón Björnsson — 28.02'10

Söngkeppni NFMH

Kæru MH-ingar (og aðrir snillingar) !

 

Föstudaginn 5. mars verður söngkeppni NFMH haldin með þvílíkum stæl í Loftkastalanum. Húsið opnar klukkan 19:30 og keppnin hefst stundvíslega klukkan 20:00. Það kostar litlar 500 krónur fyrir þá sem eru í NFMH og 1000 krónur fyrir aðra snillinga sem vilja mæta. 

 

Þrír landsþekktir dómarar munu síðan sjá um að velja atriðið sem mun keppa fyrir hönd MH á Akureyri, í söngkeppni framhaldsskólanna.

 

Engin miðasala verður í skólanum sjálfum fyrir keppnina, heldur gildir reglan "fyrstir koma fyrstir fá", því aðeins um 380 sæti eru í boði, sem er ekki nóg fyrir alla 1200 nemendur skólans! Og við skulum fylla kastalann!

 

Algjör snilld að mæta á söngkeppnina í rólegheitunum daginn eftir tryllt Casio Kids ball! Sjáumst =)

Tilbaka á forsíðu