Nemendafélag Menntaskólans við Hamrahlíð
NFMH stendur fyrir Nemendafélag Menntaskólans við Hamrahlíð og hefur félagið aðsetur í Norðurkjallara skólans sem stendur við Hamrahlíð 10, 105 Reykjavík. Félagið hefur verið starfrækt frá stofnun skólans árið 1966. Stjórn félagsins skipa sjö nemendur við skólan, kosnir til eins árs í senn.
Lög félagsins er hægt að nálgast hér.
Stjórn
Stjórnin hefur yfirumsjón yfir starfsemi NFMH.
Ráð
Beneventum
beneventum er málgagn félagsmanna NFMH sem gefið er út annarlega. ritstjórn beneventum ræður efni blaðsins hverju sinni en öllum meðlimum NFMH, jafnt fyrrverandi sem núverandi, er frjálst að senda efni í blaðið. beneventum[hja]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Búðarráð
búðarráð sér um að halda basar nokkrum sinnum á ári þar sem nemendum MH gefst kostur á því að selja vörur sínar. budarrad[hja]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Fréttapési
gefur út fréttapésa
Í þessu ráði sitja:Íþróttaráð
félagið hefur yfirumsjón með íþróttastarfi NFMH. íþróttafélaginu ber að halda ýmis íþróttamót, t.a.m. stórmót (íþróttamót stórfélags NFMH), fótboltamót og hlíðarkappið. auk þess hefur félagið umsjón með klappliði nemendafélagsins og útnefnir klappliðsstjóra. sport[hjá]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Lagningadagaráð
lagningardagaráð sér um skipulag og framkvæmd lagningardaga sem eru einskonar þemadagar haldnir á vorönn. lagningardagar eru undanfari árshátíðar NFMH. lagno[hjá]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Leikfélag
stjórn leikfélags fer fyrir leikfélaginu og heldur leiksýningu, leiklistarnámskeið og ræður leikstjóra í samráði við stjórn NFMH. Hefð er fyrir því að sýning leikfélagsins sé á vorönn. leikstjórar sýningar leikfélagsins '07-'08 eru þeir Stefán Hallur Stefánsson og Vignir Rafn Valþórsson. leikfelag[hjá]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Listafélag
listafélagið sér um skipulagningu tónleika, myndlistarsýninga og annars sem list getur talist listafelag[hjá]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Málfundafélag
málfundafélagið sér um að skipuleggja málfundi, halda ræðunámskeið (á haustönn) og skipuleggja MORTAR (innanskólaræðukeppni NFMH) á hverri önn. málfundafélagið er tengiliður NFMH við MORFÍS (Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi). jafnframt sér ráðið um að skipa þjálfara MORFÍS liðs NFMH í samstarfi við stjórn nemendafélagsins. malfundafelag[hja]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Mímisbrunnur
mímisbrunnur er tengiliður NFMH við Gettu Betur keppnina. ráðið sér um að ráða þjálfara til að þjálfa Gettu Betur lið skólans, halda innanskólaspurningakeppni og inntökupróf í Gettu Betur liðið. mimisbrunnur[hja]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Myndbandabúi
myndbandabúi skal standa fyrir myndbandasýningum, halda utan um kosningasjónvarp fyrir vorkosningar, halda námskeið um notkun og meðferð tækja til myndbandagerðar og standa að gerð nýnemamyndar auk þess að taka upp myndbönd af öllum uppákomum NFMH ef þurfa þykir. myndband[hja]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Óðríkur Algaula
lagasmíðakeppni NFMH heitir Óðríkur Algaula og fer fram á haustönn ár hvert, ráð hans sér um skipulagningu keppninnar auk þess að skipuleggja söngkeppni félagsins. söngkeppni NFMH skipuleggur ráðið í samstarfi við meðstjórnanda nemendafélagsins. sigurvegari söngkeppninnar tekur þátt í söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd NFMH. odrikur[hjá]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Skemmtiráð
hlutverk skemmtiráðs er fyrst og fremst að skipuleggja böll sem fara fram á vegum NFMH. auk þess skipuleggur skemmtiráð árshátíð og busadag í samstarfi við stjórn nemendafélagsins. jafnframt skal ráðið stuðla að sem flestum skemmtikvöldum. skemmtirad[hjá]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Tónlistarráð
þar sem tónlistin ræður ríkjum
Í þessu ráði sitja:Útvarpsráð
útvarpsráð sér um að halda útvarp þrisvar sinnum á skólaári, vikunni sem Óðríkur Algaula fer fram, á Lagningardögum og í kosningaviku vorannar. allir félagsmenn NFMH geta sótt um að verða umsjónarmenn útvarpsþáttar. utvarp[hjá]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:Nefndir
Góðgerðaráð
Góðgerðarráð sér um að halda góðgerðarviku einusinni á önn
Í þessu ráði sitja:Markaðsnefnd
hlutverk markaðsnefndar er að aðstoða stjórn og ráð NFMH við fjáröflun og auglýsingasöfnun ýmiskonar. framkvæmdastjóri NFMH fer fyrir nefndinni. nýkjörin stjórn skipar í nefndina vor hvert.
Í þessu ráði sitja:Markaðsnefnd leikfélagsins
Markaðsnefnd leikfélagsins hefur það hlutverk að aðstoða leikfélagsstjórnina við ýmis konar störf en þó aðallega við fjáröflunartengd málefni og auglýsingar. Leikfélagsstjórn skipar í markaðsnefnd ár hvert og annarlega ef með þarf.
Í þessu ráði sitja:Embætti
Auglýsingagangsters
4.4. Auglýsingagangsters sjá um að auglýsa starfsemi á vegum NFMH. Auglýsingagangsters skulu sjá um að hengja upp þær auglýsingar sem berast skrifstofu skólans eða nemendafélaginu, svo og að taka niður óheimilar og útrunnar auglýsingar.
Í þessu ráði sitja:Einherjar
Gæslustjóri
4.3.1. Gæslunni ber skylda til að sjá til þess að engin vímuefni séu notuð í skólanum og/eða á lóð hans á meðan atburðum stendur. Þetta á m.a. við um tóbak.
Í þessu ráði sitja:IB-fulltrúar
I.B.-fulltrúar skulu sjá um samskipti við I.B.-nemendur, og aðstoða þá við hvers konar vandamál. Þeir skulu einnig sjá um samskipti við I.B.-skóla innlendis og erlendis. Þetta skal gert í samráði við stjórn NFMH. I.B.-fulltrúar skulu þýða á ensku allar tilkynningar og auglýsingar sem stjórn NFMH gefur út. Það er í verkahring stjórnar að koma umræddu efni til I.B.-fulltrúa.
Í þessu ráði sitja:Kallkerfiskauði
4.5. Kallkerfiskauði sér um auglýsingar á vegum NFMH í kallkerfi og hefur umsjón með hljóðkerfi NFMH.
Í þessu ráði sitja:Kjallaravörður
4.6. Kjallaraverðir skulu hafa eftirlit með félagsaðstöðu og stuðla að mannsæmandi umgengni. Þeir skulu í samstarfi við húsvörð, sjá um viðhald í félagsaðstöðu. Kjallaraverðir skulu vera séntilmenni og handlagnir úr hófi fram. 4.6.1. Kjallaraverðir skulu ekki þurfa að greiða aðgangseyri að skemmtunum og/eða öðrum uppákomum sem að einhverju eða öllu leyti eru haldnar í kjallaranum. Þeir skulu einnig vera allsgáðir og í einkennisbúningi kjallaravarða við þessi tilefni. 4.6.2. Kjallaraverðir skulu sjá til þess að minnsta kosti einn þeirra hjálpi til við undirbúning og frágang vegna atburða í Norðurkjallara nema að skipuleggjendur biðji um annað. 4.6.3. Kjallaraverðir skulu halda ítarlega og nákvæma skrá um staðsetningu sófa í Norðurkjallara. Umrædd skrá skal vera uppfærð í upphafi hverrar annar.
Í þessu ráði sitja:MH Perrinn
Myrkrahöfðingjar
4.8. Myrkrahöfðingjar hafa umsjón með ljósmyndaaðstöðu NFMH og skulu þeir sjá um viðhald á tækjum þar. Myrkrahöfðingjar annast einnig myndatökur og viðhald myndasafns af skemmtunum og atburðum á vegum NFMH. 4.8.1. Myrkrahöfðingjar skulu taka myndir af öllum auglýsingum er gerðar eru fyrir NFMH því þær eru svo huggulegar.
Í þessu ráði sitja:Tækjaverðir
4.7. Tækjaverðir skulu hafa yfirumsjón með tækjakosti NFMH, þeir skulu einnig í upphafi hvers skólaárs yfirfara tækjakost NFMH og skila til stjórnar NFMH lista yfir tækin. Þeir skulu svo í lok embættistíðar sinnar skila inn nýjum lista og taka þar fram allar breytingar á tækjakosti NFMH.
Í þessu ráði sitja:Vefstjórn
vefnefnd sér um að halda uppi vefsíðu NFMH, http://www.nfmh.is. vefsíðan er helsta upplýsingaveita nemendafélagsins og hefur m.a. að geyma glósusafn, spjallborð og símaskrá nemendafélagsins, Skaramúss, á stafrænu formi. vefnefnd[hjá]nfmh.is
Í þessu ráði sitja:







